Sveitasæla

Já nú er ég búinn að vera heima hjá mér í sveitasælunni í viku og þetta er yndislegt. Að sofa í rúminu sínu, sitja í húsbóndastólnum, drekka vatn með klaka úr ísskápnum, UPPÞVOTTAVÉLIN, gaseldavélin, kyrrðin....ahhhh.

Og svo fyrir utan allt þetta þá er þjónustan hérna engu lík. Ég fór t.d. með bílinn minn í morgun á verksstæði í 37.500 km skoðun. Ég var ekki búinn að panta tíma en þurfti svo að koma honum í dag þar sem ég er að fara í langferð á morgun. Ég var alveg tilbúinn því að fá neitun en viti menn...þeir tóku hann bara inn strax og kláruðu málið á innan við klukkutíma!!! Og reikningurinn hljóðaði ekki upp á fleiri tugi þúsunda eins og það hefði gert í borginni! Já það er gott að búa í sveitinniSmile

Í fyrramálið keyri ég svo á Sauðárkrók á fund og svo á föstudag og laugardag er ég á fundi á Selfoss. Svo kem ég austur aftur og verð hér til svona 10. apríl en þá er ég að fara á fund í Dublin. Viku seinna er síðan Aðalfundur Samfés á Akureyri og rúmri viku þar á eftir flýg ég til Svíþjóðar þar sem ég er að leika á einhverri leiklistarhátíð í Vesterås. Í lok maí fer ég svo á fund í Antwerpen en eftir það fer að róast...vonandiGrin


Snjótyppi

Ég horfði á þáttinn " Er grín G-vara" í gærkveldi. Ég verð að segja að ég var farinn að hlakka dáldið til að sjá gömul grínatriði og settist ég brosandi út að eyrum í stólinn. Ég var meira að segja búinn að fá Jónatan til að hlakka til...hí hí. En svo byrjaði þátturinn og vonbrigðin komu svo smátt og smátt. Það voru kannski ekki atriðin sem ollu vonbrigðunum heldur kynnirinn sjálfur. Hann var vægast sagt hræðilegur. Ég hef hingað til haft mikið álit á honum en þarna átti hann hræðilegan dag. Ég skil ekki afhverju einhver var ekki búinn að benda manninum á það áður en þátturinn var sendur í loftið! Tvö atriði stóðu reyndar upp úr og náðu að kitla hláturtaugarnar þrátt fyrir leiðindin í kynninum en það voru atriðin með Snjótyppið og svo þeir Laddi og Bjarni Fel saman. En ég er sannfærður um að þetta hefði verið skemmtilegri þáttur ef kynnirinn hefði verið betri...eða jafnvel ef það hefði enginn kynnir verið.

Vopnuð rán

Þetta er háalvarlegt mál...við erum að tala um 3 vopnuð rán á innan við sólahring!!! Ég allavega lít svo á að sprauturnar séu vopn. Þær eru notaðar þannig að hvort sem um er að ræða einhver hættuleg efni eða ekki í sprautunni þá eru þær notaðar vopn. Þetta er ekkert öðruvísi ránsvopn heldur en byssa...annaðhvort er hún hlaðin eða ekki. Ég segi það fyrir mitt leiti þá vona ég að þessir óþokkar fái mjög langan dóm!
mbl.is Þrír yfirheyrðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hólý mólý

Evran er bara að vera komin í 120 kallinn!!! Hefði maður keypt 100.000 evrur fyrir ári síðan hefði það kostað 9 kúlur...þær væru orðnar að tæpum 12 kúlum í dag.  Það er um 3 kúlur í gróða á einu ári eða 250.000 spírur á mánuði!!!

 


mbl.is Krónan lækkaði um 6,97%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frægur

Annþór

Þetta er frægasti bófinn á Íslandi í dag það er enginn vafi á því....hí hí hí


mbl.is Annþór sendur í afplánun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfés hátíðin

Eins og sést hef ég ekki verið mjög duglegur að blogga og hef ég reyndar verið skammaður fyrir það. Það hefur allt verið á kafi í vinnunni við undirbúning Samféshátíðarinnar sem haldin var í Laugardalshöllinni um síðustu helgi. Hátíðin hófst á þrusu balli þar sem Ljótu hálfvitarnir, Sign, Á móti sól, Páll Óskar, Bubbi og 5 frábær unglingabönd trylltu lýðinn. Um 4.500 unglingar mættu á ballið með 320 starfsmönnum. Geggjað stuð og greinilegt að fólk mætti til að skemmta sér. Á laugardeginum var síðan Söngkeppni Samfés en þar voru flutt 30 atriði sem höfðu komist áfram úr landshlutakeppnunum. Um 3.500 manns mættu til að hlusta á vægast sagt frábæra keppni en hún var send beint á Rás 2. Kynnar voru þau Ragnhildur Steinunn og Freysi og fóru þau á kostum eins og við var búist.

Þessi hátíð sýnir vel það góða starf sem fram fer í félagsmiðstöðvunum. Það að 4.500 unglingar geti komið og skemmt sér saman án teljandi vandræða og án allra "aukaefna" sannar það að við erum að gera rétt. Það þýðir vissulega ekki að það megi slaka á en við erum á réttri leið.


Hvar endar þetta

Nei hættið nú alveg...ég er ekki frá því að sparigrísinn sé jafnvel eldri en múslímar!!! Er ekki í lagi heima hjá fólki. Hafa sparigrísir sem sagt ekki sært trúartilfinningu múslima fyrr en akkúrat núna? Nei ykkur að segja þá ber ég virðingu fyrir trúarbrögðum annarra en þetta er bara plain stupit og yfirgangurinn er með ólíkindum!!! Það er sem sagt bara tímaspursmál hvenær verður ráðist á bónusgrísinn!
mbl.is Sótt að gríslingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Better safe than sorry

Ha ha ha...þetta er snilld. Ég trúi að húsráðandinn hafi verið hissa...en allur er varinn góðurGrin
mbl.is Töldu gufuna úr baðinu vera reyk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítill vafi!

 Ég er búinn að lesa þessa frétt nokkrum sinnum og ég er eiginlega mjög hissa á tveimur atriðum. Í fyrsta lagi er þetta sett þannig upp að það sé einhver vafi á að svona hafi verið farið með þau börn sem þarna voru. Í öðru lagi er talað um vistmenn í staðinn fyrir að börnin hafi verið beitt andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi!!! Að mínu mati er þar stór munur á.
mbl.is Urðu fyrir margskonar ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki sveitarstjórnarmál

Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að skrifa ekki um sveitarstjórnarmálGrin Ekki vil ég að Scanlon sprengi mig í tætlur...en talandi um Scanlon...Ég fór að sjá leikritið Gaukshreiðrið hjá Halaleikhópnum um daginn. Ætlaði mér að fara einn og rifja upp gamla tíma en við Scanlon lékum einmitt í þessu verki með Leikfélagi Fljótsdalshéraðs fyrir nokkrum árum. Þar lékum við geðsjúklingana Scanlon og Cheswick og ég held við séum ekki enn fullkomlega komnir úr karakterLoL

En eins og ég sagði þá ætlaði ég mér að njóta sýningarinnar all by my self en viti menn...haldið að ég hafi ekki hitt mömmu og systir mína á sýningunni...þau voru sem sagt áhorfendur. Ekki stór þessi heimur. En sýningin var fín og maður fékk stöðugt flass bökk.

Svo getur verið að Listin að lifa lifni við aftur því við sóttum um að komast á leiklistarhátíð NEATA sem haldin verður í Riga í sumar. Ísland má senda eitt verk á hátíðina og eru þrjú að berjast um að komast þangað. Ég á reyndar nokkuð góða möguleika því ég er að leika í tveimur verkanna. Útsýni sótti nefnilega líka um. Mér skylst að úrslitin verði tilkynnt í næstu viku...krossleggja fingur.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband