Lítill vafi!

 Ég er búinn að lesa þessa frétt nokkrum sinnum og ég er eiginlega mjög hissa á tveimur atriðum. Í fyrsta lagi er þetta sett þannig upp að það sé einhver vafi á að svona hafi verið farið með þau börn sem þarna voru. Í öðru lagi er talað um vistmenn í staðinn fyrir að börnin hafi verið beitt andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi!!! Að mínu mati er þar stór munur á.
mbl.is Urðu fyrir margskonar ofbeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Lítill vafi!!! Það getur ekki verið að allir þeir sem lýst hafa ofbeldinu, andlegu, líkamlegu þ.m.t. kynferðislegu, séu að ljúga upp á starfsfólkið og félaga sína. Það er því hrein ósvífni að láta að því liggja að það leiki einhver vafi á því að börnin sem vistuð voru í Breiðavík hafi verið beitt ofbeldi. Hverjum er verið að reyna að hlífa? Það á að aflétta fyrningarákvæðum vegna Breiðavíkurglæpanna með lögum og draga þá forstöðumenn, barnaverndarhyski og annað starfsfólk sem hlut á að máli til ábyrgðar með því að lögsækja það og dæma til refsingar eftir atvikum. Það er eins og það sé mikilvægast að vernda þetta glæpahyski með nafnleynd ofl. í stað þess að sækja að því að lögum. Og ég bendi sérstaklega á ábyrgð barnaverndarhyskisins sem tók börnin nauðug af foreldrum eða öðrum ástvinum til að láta níðast á þeim á fjarlægum stað. Ofurvald barnaverndaryfirvalda er stórhættulegt í höndunum á óhæfu og illa innrættu fólki eins og því miður virðist hafa verið og vera allt of algengt. Því miður grunar mig að þetta vald sé enn í höndum óvandaðs fólks í sumum tilfellum eins og nýlegar frásagnir af meðferðarheimilum sýna.

corvus corax, 22.2.2008 kl. 15:55

2 Smámynd: Þráinn Sigvaldason

Ég er þér hjartanlega sammála!!!

Þráinn Sigvaldason, 22.2.2008 kl. 16:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband